Fólk & fjör | 01. júlí 2009
Eini Íslendingurinn sem vissi ekki af Suðurlandsskjálftanum
Þær eru af ýmsum toga afsakanirnar sem óprútnir grípa til þegar þeir verða uppvísir af afbrotum. Maður og kona voru í dag sakfeld í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að ræna hús í Hveragerði daginn eftir Suðurlandsskjálftann í fyrra en húsið fór illa í skjálftanum.
Ástæðan sem maðurinn gaf fyrir að bera úr húsinu verðmæta muini var að þegar hann kom að þá hafi allt verið á rúi og stúi í húsinu. Taldi hann að einhver hefði ráðist á húsið og það eina sem hann hafi ætlað að gera var að bjarga verðmætum. Hann sagðist hins vegar ekki hafa vitað af jarðskjálftanum deginum áður og líklega þar með eini Íslendingurinn, tveggja ára og eldri, sem ekki vissi af skjálftanum.
Dóminn er að finna hér.
