Aftur til fortíðar í Hvíta húsinu
Laugardaginn 14. mars nk. verður stórviðburður í Hvíta húsinu á Selfossi en þá verður haldið INGHÓLS REUNION fyrir alla þá sem djömmuðu á Inghól á milli 1993 og 1999 og verður 28 ára aldurstakmark inn á staðinn. Hið fornfræga diskótekaragengi, DJ Marvin og TJ the DJ, eða einn stuttur og einn breiður, munu þeyta skífum.
Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands, stendur að uppákomunni en hann var skemmtanastjóri á þessu rómaða skemmtistað á árunum 1993 til 1996 og hóf þar feril sinn í skemmtanabransanum. Nú þegar hafa um það bil 300 miðar selst á viðburðinn og stefnir í mikinn fögnuð.
„Þetta er merkilegt. Við byrjuðum að kynna þetta í desember á Facebook síðunni og á sólahring höfðu um 800 manns kynnt sér giggið og 400 manns staðfest komuna. Þannig að mannskapurinn er búinn að vera hita upp í marga mánuði á Facebook," segir Einar Bárðarson sem hér áður fyrr gekk undir nafninu Dj. Marvin.
Rúmlega 400 myndir frá þessum tíma hafa fundið við húsleit hjá þeim sem sóttu staðinn á sínum tíma en þær verða sýndar á fjórum risa skjám víðsvegar um húsið. Þetta kvöld verður i fyrsta sinn opnað á efri hæð Hvíta húsins eins og í Inghól forðum daga.
Forsala er í fullum gangi í Riverside Spa og BARÓN á Selfossi en henni lýkur í kvöld klukkan 19. Nú þegar eru 420 gestir sem hafa staðfest komu sína og 359 til viðbótar sem hugsanlega ætla að mæta, samkvæmt Facebook síðu sem sett var upp í kringum viðburðinn. Facebook síðuna má finna hér.
Það er nokkuð ljóst hvar fjörið verður næstkomandi laugardagskvöld.




