Fólk & fjör | 17. mars 2009
Kvennalisti Árna Johnsen
Glöggir Eyjamenn (báðir) hafa tekið eftir því að ekki hefur dottið brosið af Árna Johnsen alþingismanni eftir að úrslit lágu fyrir í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi um liðna helgi. Náði hann þar mjög góðri kosningu í 2. sæti en það sem ku kæta Árna ekki síður er hvernig raðaðist í 1., 3. og 4. sæti í prófkjörinu. Og lái honum hver sem vill! Sætin eru skipuð íðilfögrum drottningum og engu líkara en þátttakendur í prófkjörinu hafi talið sig vera að kjósa í keppninni um Ungfrú Suðurland og valið svo Árna Johnsen sem kynni.
Á Suðurlandi gengur listi Sjálfstæðismanna nú undir heitinu Kvennalisti Árna Johnsen en vafasamt er þó að listinn höfði til sunnlenskra femínista.

