Offisérar og séntilmenn skemmta sér saman
Concert, umboðsfyrirtæki Selfyssingsins Einars Bárðarsonar, hefur tekið á leigu hinn fornfræga „Officeraklúbb“ á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll og þar hyggst Einar opna einn stærsta, ef ekki stærsta, skemmtistað landsins næstkomandi laugardag. Einar segist í samtali við Sunnlending.is hvergi banginn þrátt fyrir krepputal enda alþekkt að oft er sókn besta vörnin.
Skemmtistaðurinn mun halda óbreyttu heiti frá því glys og glaumur ómaði í Officeraklúbbnum á blómaskeiði varnarliðsins en öfugt við þá eru íslenskir herstöðvarandstæðingar, og aðrir landsmenn, nú velkomnir.
Einar segir að Officeraklúbburinn verði ekki með daglegan opnuartíma heldur verði einungis opið við sérstök tækifæri. „Þarna eru miklir salir og stórir barir og því er staðurinn mjög hentugur fyrir allar stærri uppákomur svo sem árshátíðir og fleira í þeim dúr. Svo skemmir það heldur ekki fyrir að þetta er líklega eini skemmtistaðurinn í Evrópu sem getur státað af eigin alþjóðlegum flugvelli,“ segir Einar.
Húsnæðið er i eigu íslenska ríkisins en Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, hefur umsjón með húsinu. Margir sóttust eftir að leigja húsið og er Einar mjög ánægður með það traust sem fyrirtæki hans er sýnt með því að verða fyrir valinu.
Á opnunarhátíðinni munu margar af skærustu tónlistarstjörnum Íslands skemmta gestum svo sem Skítamórall, Stuðmenn, Helga Möller og Jóhann Helgason, The U2 Project að ógleymdum Herberti Guðmundssyni sem verður sérlegur gestur á opnunarhátíðinni. Þýski teknótryllirinn Micka Frurry flýgur svo sérstaklega til landsins vegna opnunarhátíðarinnar og kemur þá einkaflugvöllur Officeraklúbbsins í góðar þarfir.
Búist er við miklum fjölda gesta á opnunarhátíðina, meðal annars hópi Selfyssinga sem ætla að heiðra sveitunga sinn suður með sjó með nærveru sinni. Offisérarnir munu því koma af Suðurnesjunum en séntilmennirnir frá Selfossi.
Myndirnar hér til hliðar voru teknar í húsnæði Officeraklúbbsins ekki alls fyrir löngu en þó áður en Concert leigði staðinn.



