Fólk & fjör | 25. apríl 2009
Vinstri og grænir í vitlausu kjördæmi
Vinstri grænir hafa í auglýsingaskyni lagt gamalli hvítmálaðri rútu sunnan hringtorgsins við Ölfusárbrú á Selfossi. Myndir af frambjóðendum flokksins prýða glugga rútunnar, sem líklega var upphaflega í eigu bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli, og á hlið hennar stendur stórum stöfum: Vegur til framtíðar. Slagorðinu fylgir svo hvatningin: Kjóstu!
Hæpið er að þessi aldna og hrörlega herrúta beri nokkurn um langan veg en verra er að enginn hinna 10 frambjóðenda sem auglýstir eru í gluggunum er í framboði í Suðurkjördæmi. Það er því ekki annað að sjá en rútunni hafi verið lagt í vitlausu kjördæmi ... eða hún ekki haft þrek í Kambana og gefið upp öndina á suðurleið.
