Þyrlubjörgunarsveit kölluð út til að leysa skólaverkefni
Oft þurfa nemendur á aðstoð að halda við nám sitt og þykir engin skömm að. Einsdæmi hlýtur þó að teljast að kalla þurfti til þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar til aðstoðar við lausn skólaverkefnis en svo var raunin síðastliðinn sunnudag þegar nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi lenti í sjálfheldu í Vífilsfelli.
Nemandinn, stúlka, leggur stund á námsáfanga við skólann þar sem til þess er ætlast að nemendur fari í gönguferðir. Flestar slíkar ferðir eru farnar í hópum en eina ferð á að fara á eigin vegum. Skólameistarinn, Örlygur Karlsson, segir kennara stúlkunnar hafa beint þeim tilmælum til nemenda að þeir hefðu göngufélaga í þessum einstaklingsferðum en í gær var stúlkan ein á ferð. Lenti hún í sjálfheldu í fjallinu og að endingu þurfti að kalla út þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar til að ná stúlkunni til byggða en það var jú hluti af verkefninu; að koma heim aftur.
Vissulega skipti mestu máli að koma stúlkunni slysalaust heim og þakkarvert að það tókst. Á tímum niðurskurðar í opinberum rekstri verður þessa verkefnis hins vegar jafnframt minnst sem dýrasta skólaverkefnis Íslandssögunnar.
