Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Fólk & fjör  |  05. maí 2009

Illræmdur hani angrar Eyjamenn

Illræmdur hani gerði Vestmannaeyingum lífið leitt í liðinni viku; svo mjög að kvartað var yfir framferði hans við lögregluna í Eyjum. Kvörtunin var reglum samkvæmt færð til bókar en angur Eyjamanna fólst í því að haninn galaði á morgnana.

Hanaeigandinn tók upp hanskann fyrir morgunglaða hanann sinn og svaraði lögreglunni því til að haninn galaði stundvíslega klukkan 7 að morgni í því augnamiði að reka hænur sínar á fætur.

Þetta þótti lögreglunni í Eyjum góð rök og líklegt að ekki verði frekari eftirmálar af morgungali hanans.

Hins vegar er ekki loku fyrir skotið að hani þessi verði tekinn á beinið fyrir aðra ósæmilega framkomu því hann er grunaður um að hafa hvatt til útstrikana á Árna Johnsen í ný afstöðnum kosningum. Stoðum hefur verið skotið undir kenninguna því haninn ku ættaður af Árborgarsvæðinu; fæddur og fóðraður í Ölvisholti þar til hann var seldur til Eyja.

Sjá tilkynningu frá lögreglunni hér.