Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Magnús Hlynur Hreiðarsson, eini íslenski fjölburafréttamaðurinn.
Fólk & fjör  |  07. maí 2009

Sérhæfir sig í fjölburafréttum

Algengt er að blaða- og fréttamenn sérhæfi sig í ákveðnum tegundum frétta svo sem viðskiptafréttum, íþróttafréttum, sjávarútvegsfréttum og þar fram eftir götunum. Magnús Hlynur Hreiðarsson, ritstjóri Dagskráarinnar á Selfossi, hefur ákveðið að feta slíka slóð en hann er nú um stundir eini íslenski blaðamaðurinn sem sérhæfður er í fjölburafréttum.

Forsíðufrétt Dagskráarinnar sem kom út í dag fjallar um ferna tvíbura í leikskólanum Brimveri á Eyrarbakka og þann 26. mars síðastliðinn var forsíðufrétt Magnúsar Hlyns um þrenn systkini á Selfossi sem fengu bílprófið samtímis en það voru vitaskuld þríburar. Það er því morgunljóst að Magnús Hlynur hefur nef fyrir fjölburafréttum og bíða lesendur blaðsins nú spenntir eftir að sjá hvar MHH rekur fjölburafréttanefið niður næst.