Draugur hrellir Einar Bárðarson
Selfyssingurinn Einar Bárðarson, sem um stundarsakir býr í rannsóknarskyni í Reykjanesbæ, var í gær hrelltur af amerískum húsdraugi í Officeraklúbbnum, sem Einar rekur suður með sjó, en sá ameríski kunni illa að meta heimsókn fimm Rússa í klúbbinn.
Fram kemur á Vísi í dag að Icelandair Technical Services á Keflavíkurvelli, dótturfyrirtæki Icelandair, hafi haldið vorfagnað fyrirtækisins í Officera klúbbnum í gær en á meðal gesta voru 5 Rússar. Einar segir að ekki sé vitað til þess að rússneskir ríkisborgarar hafi áður stigi fæti inní Officera klúbbinn sem áður fyrr var höfðuðvígi afþreyingar fyrir offursta og herforingja bandaríska hersins.
„Þetta var svolítið sérstakt. Það stóð þó aldrei annað til en að bjóða þá velkomna enda ekki annað komið til greina. En ég hafði áhyggjur af húsdraugnum enda leið ekki á löngu þangað til að klúbburinn varð símasambandslaus við umheiminn. Símalínan í húsið rofnaði þannig að fyrir þá sem trúa á slíkt og hafa gaman af samsæriskenningum þá er þetta mikill efniviður,“ segir Einar í samtali við Vísi.
