Fólk & fjör | 11. júní 2009
Sævar Þór upp í ICESAVE-skuldirnar
Portúgalski markahrókurinn Cristiano Ronaldo verður að líkindum seldur frá Englandsmeisturum Manchester United til Real Madrid fyrir 80 milljónir punda - eða um 17 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins. Verðið miðast eðlilega við markheppni kappans en hann hefur skorað 84 mörk í 196 leikjum fyrir Manchester United eða að jafnaði tæp 0,43 mörk í leik.
Sævar Þór Gíslason, markaskorarinn mesti hjá meistaraflokki Selfoss, hefur skorað 200 mörk í 357 leikjum í mótum á vegum KSÍ eða liðlega 0,56 mörk í leik sem er töluvert betra en Ronaldo hefur afrekað. Því er eðlilegt að sú spruning vakni hvort ekki megi setja Sævar þór upp í ICESAVE-skuldir íslenska ríkins og lækka höfuðstól skuldanna þannig verulega.
