Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Fólk & fjör  |  23. júní 2009

Vanilludropaþjófur á Reykjanesi

Í dag var þingfest í héraðsdómi Reykjaness mál á hendur konu á fertugsaldri sem sökuð er um að hafa stolið 109 glösum af vanilludropum í 12 ránsferðum. Brotin áttu sér stað á sex mánaða tímabili en auk vanilludropanna stal konan tveimur bókum, tveimur tímaritum og nokkrum glösum af sítrónu- og kardimommudropum.

Ákæruvaldið fer fram á að konan verði dæmd til refsingar en líklega væri betra að dæma hana til vistunar á viðeigandi stofnun sem í þessu tilfelli væri bakarí.

Þeir sem ekki trúa þessu geta sannfærst með því að smella hér.