Beðið eftir öflugum jarðskjálfta
Enn bólar ekkert á stórum jarðskjálfta sem Lára Ómarsdóttir, miðill á Selfossi, spáði að yrði á Reykjanesi í dag, 27. júlí. Spádómur Láru kann enn að rætast því hún segist hafa fundið fyrir tímasetningunni 23:15.
Í frétt í Dagskránni á Selfossi, sem kom út 2. júlí síðastliðinn, sagðist Lára hafa látið starfsmenn Veðurstöfunnar vita af stóra Suðurlandsskjálftanum í fyrra með 10 daga fyrirvara og sömuleiðis varað við Suðurlandskjálftanum árið 2000. Starfsmenn Veðurstofu segjast hafa fengið viðvaranir frá Láru, og fleiri miðlum í gegnum tíðina, en geta ekki staðfest að hún hafi gefið út 10 daga viðvörun í fyrra.
Í kjölfar fréttarinnar í Dagskránni tók blaðamaður Vikunnar viðtal við Láru þar sem fjallað var um öflugan jarðskjálfta 27. júlí með upptök á Krýsuvíkursvæðinu. Mbl.is greinir frá því í dag að eftir að viðtalið birtist í Vikunni hafi einhverjir haft samband við Almannavarnir og Veðurstofuna til að athuga hvort líkur væru á stórum jarðskjálfta í dag. Bergþóra S. Þorbjarnardóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir engar vísbendingar um stóran jarðskjálfta í dag.

Skrifa athugasemd
Öllum er frjálst að setja inn athugasemdir og ekki er nauðsynlegt að gefa upp fullt nafn; gælunafn dugar. Netföng þeirra sem skrifa athugasemdir eru ekki sýnileg á vefnum. Afar mikilvægt er að gæta orða sinna þegar athugasemdir eru skrifaðar og persónuníð eða dónaskapur verður ekki látinn viðgangast. Ágæt regla er að skrifa um náungann eins og þú vilt að hann skrifi um þig!