Eyþór tekjuhæsti bæjarfulltrúi Íslands
Samkvæmt úttekt Tekjublaðs Frjálsrar verslunar var Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í Árborg, tekjuhæsti bæjarfulltrúi landsins í fyrra með tæpar 2,5 milljónir króna á mánuði.
Könnun blaðsins byggist á álögðu útsvari eins og það birtist í álagningarskrám. Blaðið setur þann fyrirvara að um sé að ræða skattskyldar tekjur á árinu 2008 og þær þurfi ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn geti falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Þá kunni í launum sumra að vera innifaldir kaupaukar vegna ársins 2007.
Þá er tekið fram að í tölunum séu ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Reynt var að skrá menn í flokka samkvæmt þeim störfum sem þeir gegna nú. Einnig er minnt á að nokkuð hafi verið rætt um villur í álagningu skattstjóra og að kærufrestur sé ekki runninn út. Álagning sé því ekki endanleg.

Athugasemdir
Skrifa athugasemd
Öllum er frjálst að setja inn athugasemdir og ekki er nauðsynlegt að gefa upp fullt nafn; gælunafn dugar. Netföng þeirra sem skrifa athugasemdir eru ekki sýnileg á vefnum. Afar mikilvægt er að gæta orða sinna þegar athugasemdir eru skrifaðar og persónuníð eða dónaskapur verður ekki látinn viðgangast. Ágæt regla er að skrifa um náungann eins og þú vilt að hann skrifi um þig!