Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Fuglahúsaþorpið á sýningunni vakti verðskuldaða athygli.
Fréttir  |  29. júní 2009

Selfosslögreglan hrósar Hvergerðingum

Lögreglan á Selfossi segir garðyrkju- og blómasýninguna Blóm í bæ, sem haldin var í Hveragerði um helgina, hafa heppnast afar vel frá sjónarhóli lögreglunnar og skipuleggjendum til mikils sóma. Margt fólk sótti Hveragerði heim um helgina og voru tjaldsvæðin fullsetin. Þrátt fyrir það kom ekki til kasta lögreglunnar utan eitt tilfelli þar sem ökumaður sem varð fyrir því óláni að aka utan í kyrrstæða og mannalausa bifreið leitaði liðsinnis lögreglu til að hafa upp á eiganda hennar.