Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Efnilegir piltar.
Íþróttir  |  01. júlí 2009

Fengu leiðsögn þjálfara frá IFK Gautaborg

Síðastliðin föstudag var haldin á knattspyrnuvellinum á Hellu fótboltaæfing fyrir afreksleikmenn frá Selfossi og KFR. Efnilegustu strákar beggja félaga, fæddir 1992-1995, æfðu ndir stjórn sænska þjálfarans Eijlert Björkman, þjálfara unglingaakademíu IFK Gautaborgar, en Björkman er hér á landi í boði samstarfsklúbbs KFR, Selfoss.

Björkman sagði mikinn efnivið í hópnum og lofaði leikmenn fyrir frammistöðu sína á æfingunni.