Sævar Þór fór hamförum
Sævar Þór Gíslason skoraði öll mörk Selfoss þegar liðið lagði Aftureldingu í gærkvöldi með fjórum mörkum gegn engu en leikurinn fór fram í Mosfellsbæ. Eftir sigurinn er Selfoss í 1. sæti 1. deildar karla í knattspyrnu með 22 stig en Haukar koma næstir með 19 stig.
Tómas Þóroddsson hefur tekið saman skýrslu um leikinn:
Það var ekki að sjá á Selfossliðinu að þeir Stefán Ragnar og Einar Ottó hafi verið í banni, en þeir tveir hafa spilað frábærlega í sumar. Gulli og Ómar þjálfarar Selfoss sýndu enn og aftur kjark er þeir gáfu einum af ungu leikmönnum Selfoss tækifæri í byrjunarliðinu. En Jón Daði Böðvarsson sem skoraði 4 mörk og lagði upp 1 í sigurleik gegn Stjörnunni í 2. flokk fyrr í vikunni stóð svo sannarlega undir væntingum með spilamennsku sinni í gærkvöldi.
Leikurinn byrjaði frekar rólega en Sævar Þór átti þó skot yfir eftir góðan undirbúning Jóns Daða. Rannver Sigurjóns átti síðan hörkuskot í stöng á marki Selfoss eftir um 15 mínútna leik. Mínútu seinna vann Ingó boltann á miðjunni, gaf hann á Jón Guðbrands og hann stakk inn á Sævar sem vippaði boltanum yfir markmann Aftureldingar og í netið. Staðan orðin 0-1 fyrir Selfoss og veislan að byrja.
Þegar um hálftími var búinn af leiknum bjuggu Jón Guðbrands, Sævar Þór og Arilíus til frábæra sókn en rétt áður en þeir sluppu í gegn náði varnarmaður Aftureldingar að bjarga í horn. Arilíus átti svo góðan skalla yfir, áður en hann pressaði varnarmann Aftureldingar þannig að boltinn barst til Sævars Þórs sem slapp einn í gegn og setti boltann með vinstri í markhornið nær. Staðan orðin 0-2 og greinilegt að Selfyssingar voru heitir í kvöld.
Á 36. mínútu átti Rannver aftur gott skot að markið Selfyssinga, en nú hafnaði boltinn í slánni. Þremur mínútum seinna stakk Arilíus sér í gegn, en skot hans fór yfir. Á 41. mínútu tók Jón Daði einn á og gaf snyrtilega sendingu inn á Arilíus, hann átti gott skot sem var vel varið, en Sævar Þór var fyrstur að átta sig og setti boltann í netið. Staðan því orðin 0-3 fyrir Selfoss og Sævar Þór komin með þrennu. Þegar um mínúta var eftir að leiknum átti Ásgeir góðan kross fyrir eftir hornspyrnu, en Agnar Bragi hitti ekki boltann á markteig þar sem hann stóð einn og óvaldaður.
Fyrstu fimm mínútur af seinni hálfleik voru algjörlega eign Aftureldingar og áttu þeir m.a annars skot í slá. En úr fyrstu sókn Selfyssinga fékk Jón Daði aukaspyrnu er hann var við það að sleppa í gegn. Arilíus tók spyrnuna og smellti boltanum í stöngina. Eftir um 15. mínútna leik átti Gulli sendingu fyrir markið eftir hornspyrnu og Sævar Þór var mættur og átti hjólhestaspyrnu sem sleikti slána.
Sævar Þór innsiglaði svo sigur Selfyssinga er hann slapp einn í gegn og varnarmaður hrinti á bakið á honum. Það var ómögulegt fyrir góðan dómara leiksins Gunnar Jarl að sjá brotið, því þannig var stefnan. En athugull aðstoðardómari hans, Ingi Freyr, hafði góða sjónlínu á brotið og flaggaði víti. Virkilega vel gert hjá þeim Gunnari Jarli og Inga Frey og samvinna til fyrirmyndar. Sævar Þór skoraði nokkuð auðveldlega úr vítinu, þó svo að markmaðurinn hafi snert boltann og staðan því 0-4 og Sævar Þór með öll mörkin.
Lítið markvert gerðis eftir þetta og heldu Selfyssingar boltanum meira án þess þó að skapa sér færi. Næsti leikur er heimaleikur gegn Haukum og er um sannkallaðan toppslag að ræða, en liðin sitja nú í 1. og 2. sæti deildarinnar. Leikurinn fer eins og áður sagði fram á Selfossvelli og hefst kl 20.00 fimmtudaginn 9. júlí.
Byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur, Ásgeir Örn, Gulli Jóns, Agnar Bragi, Jón Sveins, Ingþór (Gummi Tóta) Ingó Tóta, Jón Guðbrands (Henning) Jón Daði, Arilíus og Sævar Þór (Siggi Eyberg)
„S“ Selfyssinga í leiknum fengu þeir Sævar Þór 3 „S“ Agnar Bragi og Arilíus „2“ og 1 „S“ fengu þeir Ingó, Jón Daði, Gulli, Jóhann Ólafur og Ásgeir Örn.
Tómas.
