Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Myndefnið á sýningunni er vatn í ýmsum myndum, einkum ís.
Menning  |  06. júlí 2009

Birtingarmyndir vatnsins

Í Gallerí undir stiganum í Þorlákshöfn stendur nú yfir sýning á ljósmyndum eftir Aðalstein Leifsson og er yfirskrift sýningarinnar Vatn í föstu formi. Eins og nafnið gefur til kynna er myndefnið vatn í ýmsum myndum, einkum ís.

Þetta er fyrsta sýning Aðalsteins en hann hefur verið mikill áhugamaður um ljósmyndun síðustu 15 ár og með tilkomu stafrænnar tækni hefur áhuginn aukist jafnt og þétt. Myndirnar á sýningunni eru teknar á árunum 2004-2009.

Sýningin stendur út júlímánuð og er opin á opnunartíma Bæjarbókasafns Ölfuss.