Fimleikasýning á Hvolsvelli
Landsmótslið HSK í fimleikum verða með sýningu í íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli klukkan 20 í kvöld, þriðjudagskvöld, hvar liðin munu sýna æfingar sem þau ætla að keppa í á Landsmóti UMFÍ, í bland við aðrar æfingar. Liðin lofa ævintýralegum stökkum og miklum loftfimleikum af bestu gerð en aðgangseyrir er krónur 500.
Fimleikaæfing fyrir börn og unglinga
Klukkan 18 í dag mun meistarahópur Selfoss í fimleikum halda fimleikaæfingu fyrir börn á öllum aldri í íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Æfingin hefst klukkan 18 og henni lýkur klukkan 19:30. Farið verður í skemmtilegar æfingar á loftgólfi, fibergólfi, trampólíni og fleiru og munu stúlkurnar í meistarahópnum, ásamt þjálfurum þeirra, leiðbeina á æfingunni.
Þátttökugjald á æfingunni er 1.000 krónur en frítt er á sýninguna síðar um kvöldið fyrir þá sem taka þátt í æfingunni.
