Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Hrútavinir á þorrablóti árið 2006.
Menning  |  07. júlí 2009

Hrútavinir snæða skötu á Þorláksmessu að sumri

Í tengslum við Bryggjuhátíð á Stokkseyri, sem stendur frá 17. til 20. júlí næstkomandi ætla Hrútavinir á Suðurlandi að fara síðasta dag hátíðarinnar í Sumar- og afmælisferð í Garð á Reykjanesi hvar þeir hyggjast snæða skötu með Súluvinum frá Vestmannaeyjum og Keflavík. Við sama tækifæri verður því fagnað að einn Hrútavina, Ásmundur Friðriksson, er orðinn bæjarstjóri í Garðinum.

Þann 20. júlí er Þorláksmessa á sumri en hún var lögleidd árið 1237 til að minnast þess að þann dag árið 1198 voru bein Þorláks helga Þórhallssonar, biskups í Skálholti, tekin upp svo nýta mætti þau til áheita. Var sumarmessa þessi ein mesta hátíð ársins á Íslandi fyrir siðaskipti og nú ætla sunnlenskir Hrútavinir að blása eldi gleðskapinn.