Íþróttir | 08. júlí 2009
Selfyssingar taka á móti Haukum
Meistaraflokkur karla á Selfossi mætir annað kvöld Haukum í 1. deild karla í knattspyrnu og fer leikurinn fram á Selfossvelli. Leikurinn verður sannkallaður toppslagur því Selfyssingar eru með 22 stig á toppi deildarinnar og Haukar með 19 stig í 2. sæti.
Liðin komu saman upp úr 2. deild fyrir tveimur árum og eiga því að þekkjast vel. Selfoss vann Aftureldingu 0-4 í síðasta leik þar sem Sævar Þór Gíslason gerði öll fjögur mörk Selfyssinga. Haukar unnu HK á Ásvöllum á sama tíma 2-1.
