Sævar Þór tryggði Selfyssingum toppsætið áfram
Selfyssingar eru enn á toppi 1. deildar karla í knattspyrnu eftir að þeir gerðu 2-2 jaftefli við Hauka síðastliðinn föstudag. Ásgeir Þór Ingólfsson og Pétur Ásbjörn Sæmundsson komu Haukum í 0-2 en Sævar Þór Gíslason jafnaði metin fyrir Selfoss með mörkum undir lokin á sitthvorum hálfleiknum. Sævar Þór Gíslason er markahæsti leikmaður 1. deildar karla í sumar en hann hefur skorað 48 mörk í 46 deildarleikjum með Selfossi undanfarin þrjú sumur.
Í Fréttablaðinu um helgina var eftirfarandi umfjöllun um Sævar Þór en Óskar Ófeigur Jónsson vann greinina:
Spurður hvort ég væri búinn að týna markanefinu
Sævar Þór Gíslason hefur verið óstöðvandi í síðustu leikjum með Selfyssingum í 1. deildinni. Hann hefur meðal annars skorað átta mörk í síðustu þremur leikjum, sem hafa skilað Selfyssingum sjö stigum og séð til þess að liðið er enn í efsta sæti deildarinnar.
Sævar Þór var jafnvel að hugsa um að hætta fyrir tímabilið en ákvað að halda áfram. Það gekk hins vegar lítið að skora í maí. „Hinir strákarnir byrjuðu að skora í fyrstu leikjunum og svo fóru þeir eitthvað að skjóta á mig og þá fór ég að setja hann," sagði Sævar Þór í léttum tón. Sævar Þór lék ekki fyrsta leik mótsins og náði síðan ekki að skora í næstu þremur leikjum.
„Maður fékk aðeins að heyra það hvort maður væri hættur og hvort ég væri búinn að týna markanefinu," segir Sævar, sem hefur síðan skorað 11 mörk í 6 leikjum. „Mörkin hafa oft dreifst meira á leikina hjá mér en þetta er mjög skemmtilegt. Á meðan við erum að hala inn stig er maður ánægður," segir Sævar.
Vinnan gengur fyrir
Mörgum þótti það skrýtin ákvörðun þegar Sævar Þór ákvað að hætta að spila í úrvalsdeildinni og skipti yfir í þá 2. deildarlið Selfoss.
„Ég fékk heldur betur að heyra það þegar ég fór. Ég álít hins vegar að vinnan gangi fyrir, en ég fékk vinnu í mínum heimabæ. Ég fór í aðgerð þetta ár sem ég ákvað að fara yfir til Selfoss. Svo voru Fylkismenn byrjaðir að æfa en ég mátti ekki æfa vegna meiðslanna. Ég heyrði ekkert í þjálfaranum og það virtist enginn áhugi á að semja við mig þannig að ég fór bara að spila með Selfossi," segir Sævar og hver veit nema hann eigi eftir að spila aftur í efstu deild - með Selfossi.
„Það væri algjör draumur að spila með Selfossi í efstu deild en við erum með fæturna á jörðinni. Þetta er ný staða hjá okkur því við höfum aldrei verið á toppnum. ÍBV var á toppnum allt síðasta sumar þannig að þetta er nýtt fyrir okkur og bara gaman," segir Sævar.
Sævar þakkar félögum sínum í Selfossliðinu fyrir hjálpina og þá sérstaklega Arilíusi Marteinssyni sem leikur við hlið hans í framlínunni.
„Við misstum Viðar til ÍBV en það kom annar strákur inn, Arilíus. Hann var frammi með mér 2007 þegar Viðar var bara á bekknum en það skiptist síðan árið eftir. Hann þekkir þetta allt og er búinn að eiga stóran þátt í þessum mörkum. Ég veit ekki hvað hann hefur gefið margar stoðsendingar á mig og hann er að hjálpa mér mjög mikið. Maður er oftast með tvo varnarmenn á sér og þá losnar um hann. Hann er mjög skapandi spilari," segir Sævar.
Sævar Þór hefur nú skorað 11 síðustu deildarmörk Selfossliðsins og hefur enginn annar leikmaður skorað fyrir liðið síðustu 514 mínútur. Síðastur til að skora á undan Sævari var Agnar Bragi Magnússon, sem kom liðinu í 1-0 á móti Víkingi úr Ólafsvík 5. júní síðastliðinn.
„Það var einhver að segja mér að þetta gæti verið Íslandsmet," segir Sævar. Það hefur ekki fengist staðfest en er líklegt.
Klaufaskapur að fara ekki upp
Selfyssingar voru á leiðinni upp í úrvalsdeildina síðasta sumar en misstu Stjörnumenn upp fyrir sig á lokasprettinum.
„Við gáfum eftir í blálokin í fyrra. Það var leiðinda klaufaskapur að komast ekki upp. Þetta var eins og margir þjálfarar segja, að það hafi verið ákveðið reynsluleysi í hópnum, og menn læra af reynslunni. Það er vonandi að við höfum lært af þessu í fyrra," segir Sævar, sem er ekkert að missa sig yfir góðri stöðu liðsins í dag.
„Við erum ekkert farnir að tala um það ennþá að komast upp í Pepsi-deildina enda mótið rétt að verða hálfnað. Það er frábær uppgangur á Selfossi og við ætluðum okkur að ná stöðugleika í deildinni. Það er alltaf talað um að annað árið sé svo erfitt. Við erum með ákveðin markmið, að ná vissum stigafjölda, og þegar við náum því setjum við okkur ný markmið," segir Sævar Þór.
