Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Kvennalið Selfoss.
Íþróttir  |  13. júlí 2009

Selfossdömur gerðu jafntefli við Sindra

Meistaraflokkur kvenna á Selfossi gerði jafntefli við Sindra frá Hornafirði 1-1 síðastliðinn laugardag en leikurinn fór fram á Selfossi. Sindrastelpur skoruðu í upphafi leiks en Selfyssingar jöfnuðu á lokamínútunni. Selfoss er enn í 2. sæti með 13 stig en Sindri er í 4. sæti með 7 stig. 

Tómas Þóroddsson hefur tekið saman eftirfarandi skýrslu um leikinn:
Byrjunarlið Selfoss var eftirfarandi:  Sigrún, Sif, Þóra Margrét, Dagný Hróbjarts, Lilja Dröfn, Karen Kristjáns, Thelma Sif, Katrín Ýr, Gumma, Íris Sverris og Aníta Guðlaugs. 

Fyrsta færi leiksins kom á 8. mínútu. Áttu gestirnir það og skoruðu þær mark eftir slæm varnarmistök heimamanna. Á 21. mínútu áttu þær svo skalla yfir og voru Selfyssingar heppnir að vera ekki 0-2 undir þar.  

Á 33. mínútu átti Katrín Ýr góðan sprett upp kantinn vinstra megin og góða sendingu fyrir. Íris Sverris var komin of djúft og náði ekki til knattarins. Næsta færi kom á 40. mínútu, en þá fór Gumma upp hægri kantinn og átti fína sendingu á Írisi Sverris, en gott skot hennar fór rétt yfir. Mínútu seinna var Gumma við það að sleppa í gegn, en markmaður Sindra sweep-aði vel og náði til boltans. 

Dóri þjálfari gerði þrjár breytingar í hálfleik. Þá komu þær Anna Þorsteins, Bára Sif og Anna María inn fyrir Lilju Dröfn, Írisi Sverris og Karen Kristjáns. Fyrsta færi seinni hálfleiks kom ekki fyrr en á 63. mínútu, en þá var Aníta að sleppa í gegn og setti boltann á Gummu sem var í betra færi. Hún var óheppin með skot sitt sem fór rétt framhjá. 

Á 70. mínútu átti Bára skot yfir eftir sendingu frá Katrínu Ýr og mínútu seinna kom fallegasta sókn leiksins. Þá kom Sif upp hægri kantinn og dró til sín varnarmann. Gumma kom til baka og fékk boltann og tók eina á í leiðinni og fann Anítu sem setti fastan bolta á fjær. Þar var Anna Þorsteins mætt, en náði þó ekki alveg til boltans og hann fór hárfínt framhjá. Virkilega falleg sókn sem hefði átt að enda með marki. 

Tveimur mínútum seinna tók Gumma eina á og skaut boltanum í innanverða stöngina. Mínútu seinna átti Gumma góða sendingu inn á Anítu, en skot hennar var vel varið. Þegar um 15 mínútur voru eftir af leiknum kom Guðbjörg inn fyrir Anítu.   

Síðasta sókn leiksins var mjög skemmtileg og árangursrík. Eitthvað fát var í vörninni og erfiðleikar að koma boltanum fram. Við það komu Sindrastelpur framar og ætluðu að refsa. Thelma Sif tók þá boltann og slengdi honum upp í hornið vinstra megin. Þar hafði Gumma pláss og setti boltann fyrir á Þóru Margréti sem átti ekki í vandræðum með að skora. Staðan 1-1 og dómarinn flautaði leikinn af skömmu síðar. Það er spurning hvort Selfoss hefðu skorað fleiri mörk ef þær hefðu verið þolinmóðar og látið boltann ganga sín á milli í leiknum. Engu að síður er Selfoss mun sterkara lið eins og tölfræðin sínir. 

Tölfræði leiksins:
Selfoss marktilraunir: 11
Selfoss horn: 5   
Sindri marktilraunir: 3
Sindri horn: 0 

„S“ Selfyssinga í leiknum fá þær: Katrín Ýr, Sif, Þóra Margrét, Gumma, Íris Sverris, Bára, Anna Þorstein, Anna María og Dagný Hróbjarts fá allar 1 „S“.  

Næstu leikir hjá stelpunum eru gegn Fjarðarbyggð og Hetti fyrir austan helgina 25. og 26. júlí. Þá verða leiknir leikir tvo daga í röð og mun það reyna á stelpunar og form þeirra. 
Tómas.