Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Ingólfur Þórarinsson skoraði fyrra mark Selfyssinga í gær en bróðir hans Guðmundur var fjarri góðu gamni þar sem hann er að leika með u-18 landsliði Íslands í Svíþjóð.
Íþróttir  |  15. júlí 2009

Selfyssingar auka forskot sitt í 1. deild

Selfyssingar lögðu Skagamenn með tveimur mörkum gegn einu í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi en leikurinn fór fram á Akranesi. Eftir sigurinn er Selfoss í 1. sæti 1. deildar með 26 stig og sex stiga forskot á HK og Hauka. Sævar Þór Gíslason er markahæsti leikmaður deildarinnar með 12 mörk.

Tómas Þóroddsson skrifar þetta um leikinn:
Fjóra leikmenn vantaði í Selfossliðið, en þeir Gummi Tóta og Jón Daði eru að leika með u-18 ára landsliðinu, Siggi Eyberg er í banni og Jón Guðbrands var meiddur. Ljóst var að leikurinn yrði erfiður, þar sem Skagamenn hafa aðeins náð í 12 stig á Íslandsmótinu í ár og þeir lögðu leikinn upp sem hálfgerðan úrslitaleik. 

Akranes byrjuðu betur og héldu bolta ágætlega án þess þó að skapa sér færi. Fyrsta skot leiksins átti Arilíus en það fór rétt yfir slána. Skagamenn áttu í kjölfarið tvö skot sem hittu ekki markið. 

Á 18. mínútu dró til tíðinda. Sævar Þór fór upp vinstri kant, lék á einn og setti boltann fyrir á Ingþór. Ingþór lagði hann í fyrsta út á Ingó Tóta sem skaut í varnarmann og í netið. Staðan orðin 0-1 fyrir Selfoss og tóku Selfyssingar öll völd á vellinum við markið. Á 26. mínútu tók Arilíus aukaspyrnu og það var Agnar Bragi sem stökk hæst og skallaði boltann rétt yfir slána. 

Mínútu seinna átti Andri Júlíusson besta færi skagamanna í fyrri hálfleik, en skot hans fór framhjá. Tveimur mínútum seinna var Skagamönnum refsað fyrir að skora ekki. En þá stakk Einar Ottó á Ingþór hann kom með góða sendingu fyrir og þar var markahrókurinn Sævar Þór mættur og setti boltann auðveldlega í markið. Staðan orðin 0-2 fyrir Selfoss. 

Fátt markvert gerðist svo eftir seinni mark Selfoss í fyrri hálfleik. Selfyssingar áttu svo fyrsta færi seinni hálfleiks, er Ingþór átti fínt skot framhjá. Eftir það tóku Skagamenn leikinn að hluta í sínar hendur, án þess þó að skapa sér umtalsverð færi. Selfyssingar lokuðu öllum leiðum og voru skipulagðir í vörn. Þegar um 10 mínútur voru búnar af seinni breyttu Akurnesingar í 4-3-3 og áttu í kjölfarið ágætis sóknir og m.a þrjá hornspyrnur í röð. 

En eftir um 20 mínútna leik virtust sem Skagamen væru að gefast upp og Selfyssingar áttu nokkrar ágætis sóknir en voru þá fyrst og fremst skipulagðir í sinni vörn. Á 72 mínútu fór Ingþór útaf eftir harkalega tæklingu og inn kom Henning Eyþór. Mínútu seinna var Sævar Þór sloppinn í gegn en Heimir Einars var í honum. Sævar Þór datt, eftir snertingu, en þó við of litla snertingu að mati dómara leiksins. Tveimur mínútum seinna vann Ingó boltann, gaf á Henning sem bar boltann upp völlinn og gaf svo á Arilíus sem átti gott skot á markið sem var varið. 

Sókn Selfyssinga var greinilega að þyngjast, en þá eiga menn það til að gleyma varnarleiknum og það gerðist í næstu sókn. Þá voru allir Selfyssingar komnir fram, nema Gulli og Agnar Bragi og ÍA komst í skyndisókn. Þrír á móti tveimur skoraði Andri Júlíusson mark eftir undirbúning frá Arnari Gunnlaugs og þetta var aftur orðin leikur. 

Skagamenn hresstust við þetta og leikurinn opnaðist aðeins, en tveimur mínútum eftir markið átti Gísli Freyr bakfalls spyrnu sem datt ofan á samskeytin. Á 83. mínútu slapp Einar Ottó í gegn eftir góða sendingu frá Henning. Einar Ottó lék á markmanninn og skoraði, en aðstoðardómarinn flaggaði og dæmdi rangstöðu. Einar Ottó var klárlega ekki rangstæður, en annar Selfyssingur var komin í rangstöðu og hefur sennilega haft áhrif á leikinn.  

Þegar um fimm mínútur voru eftir af leiknum meiddist Jóhann Ólafur, eftir brot frá Andra Júlíussyni, Jói ákvað þó að klára leikin, fyrst ekki var meira eftir.  Í uppbótar tíma var Gísli Freyr svo atkvæðamikill við mark Selfyssinga, hann átti skot framhjá og skalla sem var varinn. En sanngjarn sigur Selfyssinga staðreynd og eru þeir nú komnir með 6 stiga forskot á næstu lið.  

„S“ Selfyssinga í leiknum fá þeir Agnar Bragi, Gulli Jóns, Jóhann Ólafur, Sævar Þór og Ingþór 2 „S“ og þeir Arilíus, Ingó Tóta, Stefán Ragnar og Ásgeir 1 “S“ hver.    

Tölfræðin.
Selfoss horn: 2
Selfoss marktilraunir: 7

ÍA horn: 6
ÍA martilraunir: 9 

Næsti leikur Selfoss er gegn KA og fer leikurinn fram á Akureyri laugardaginn 18. júlí kl 14.00. 
Tómas.