Lögreglumenn voru mikið á ferðinni um Árnessýslu um liðna helgi og fylgdust með umferðinni. Yfir 150 ökumenn voru stöðvaðir við umferðareftirlit í uppsveitum Árnessýslu á sunnudagsmorguninn og þeim boðið að gefa öndunarsýni. Allir reyndust vera í lagi utan tveir sem mældust með alkóhól undir refsimörkum. Þeim var gert að hætta akstri.