Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Íþróttir  |  21. júlí 2009

Sævar þór besti leikmaður 1. deildar

Fotbolti.net valdi Sævar Þór Gíslason besta leikmann fyrri umferðar Íslandsmótsins í knattspyrnu á meðal liða í 1. deild karla. Selfyssingar eiga þrjá fulltrúa í úrvalsliði fyrri umferðar en auk Sævars Þórs eru Einar Ottó Antonsson og Jón S. Sveinsson í úrvalsiðinu.

Lið fyrri umferðar að mati vefsíðunnar fotbolti.net:
Markvörður:
Srdjan Rajkovic (Fjarðabyggð)

Varnarmenn:
Haukur Heiðar Hauksson (KA), Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir R.), Andri Hjörvar Albertsson (Fjarðabyggð), Jón Steindór Sveinsson (Selfoss)

Miðjumenn:
Haukur Ingvar Sigurbergsson (Fjarðabyggð), Einar Ottó Antonsson (Selfoss), Árni Freyr Guðnason (ÍR)

Framherjar:
Sævar Þór Gíslason (Selfoss), Jakob Spangsberg (Víkingur R.), Hilmar Geir Eiðsson (Haukar).