Fremur rólegt er undir Eyjafjallajökli sem stendur.
Fréttir | 21. júlí 2009
Jarðhræringailmur af Jökulsá á Sólheimasandi
Töluverð brennisteinslykt hefur verið af Jökulsá á Sólheimasandi að undanförnu, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Viðvarandi skjálftavirkni hefur mælst undir Eyjafjallajökli frá því í júní og fylgjast Almannavarnir og Veðurstofan grannt með framvindu mála. Ekki er talin ástæða til frekari ráðstafana að svo komnu máli, að sögn lögreglu.