Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Á annað hundrað árskort seldust á fyrsta degi.
Íþróttir  |  21. júlí 2009

Nautilus fær frábærar viðtökur á Hellu

Líkamsræktarstöð Nautilus var opnuð í kjallara sundlaugarinnar á Hellu í gær og fóru undirtektir heimamanna langt fram úr björtustu vonum aðstandenda. Yfir eitt hundrað manns keyptu árskort á fyrsta degi en í gær og í dag er hægt að kaupa árskort á sérstöku opnunartilboði.

Nautilus opnaði íkamsræktarstöð í kjallara Sundhallarinnar á Selfossi í vor og þá seldust um 600 árskort á tveimur dögum þar sem boðið var upp á opnunartilboð - 19.990 í líkamsrækt og sund í heilt ár. Sama tilboð er í boði á Hellu og miðað við íbúafjölda á Hellu og Selfossi eru íbúar Rangárþings ytra að toppa Selfyssinga.