Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Ingólfur Þórarinsson gerði fyrra mark Selfyssinga í gær og bróðir hans Guðmundur var nálægt því að skora.
Íþróttir  |  24. júlí 2009

Selfoss lagði ÍR

Selfyssingar unnu sigur á ÍR í 1. deild karla í knattspyrnu á Selfossi í gærkvöldi með tveimur mörkum gegn engu. Ingólfur Þórarinsson og Hjörtur Júlíus Hjartarson gerðu mörk Selfoss sem bæði komu þegar vel var liðið á leikinn; hið fyrra á 77. mínútu og hitt skömmu síðar.

Með sigrinum styrkti Selfoss stöðu sína á toppi 1. deildar en liðið er nú með 29 stig að loknum 13 umferðum. Fjarðabyggð er komið í 2. sæti deildarinnar með 22 stig og Haukar eru í 3. sæti með 21 stig en bæði lið hafa lokið 12 leikjum.