Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Kartöflugrös féllu í Þykkvabæ.
Fréttir  |  24. júlí 2009

Kartöflugrös féllu í Þykkvabæ og frost á Hellu

Frost mældist á láglendi á Suðurlandi í nótt og fram kom í fréttum Útvarps að ferðalangar á Hveravöllum hafi flúið inn í skála snemma í morgun og iljað sér við ofnana. Kartöflugrös féllu í Þykkvabæ og á Hellu mældist 1,6 stiga frost en það er í fyrsta skipti í sögu veðurmælinga sem frost mælist þar í júlí.

Frostið á Hellu var 1,6 stig en mælingar hafa staðið þar yfir frá fimmta og sjötta áratug síðustu aldar og þar hefur ekki mælst frost áður í júlí. Útvarpið hafði eftir Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi að mjög fátítt sé að frost mælist á Suðurlandi í júlí.

Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi á Skarði í Þykkvabæ, segir kartöflugrös hafi fallið í frostinu í nótt. „Þetta kippir öllum krafti úr kartöfluuppskerunni," segir Sigurbjartur.

Gunnar Guðjónsson, staðarhaldari á Hveravöllum, segir að gengið hafi á með snjóhryðjum. Hann segir ferðamenn hafa tekið veðrinu misvel. „Þeir sem voru í tjöldum voru nú hálf lúpulegir. Þeir voru komnir inn um leið og við opnuðum klukkan átta í morgun og sátu í kringum ofnana." segir Gunnar.

Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að landsmenn geta búist við að heldur hlýni í veðri aftur á morgun.