Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Starfsmaður Landsvirkjunar segir mennina hafa verið að veiðum á öryggissvæði og þar geti verið varasamt að veiða.
Fréttir  |  24. júlí 2009

Staðnir að óleyfilegum veiðum

Á sunnlenska vefnum Veidi.is er sagt frá tveimur veiðimönnum sem staðnir voru að óleyfilegum stangveiðum í landi Landsvirkjunar. Ritstjóri vefjarins hafði samband við starfsmann Landsvirkjunar sem sagði varasamt að veiða á þessu svæði.

Svona hljóðar fréttin á vedi.is:
„Í fyrradag voru veiðimenn á ferð við Úlfljótsvatn. Er þeir voru að kanna aðstæður og aka sem leið liggur að Steingrímsstöð þá taka þeir þar eftir tveimur mönnum fyrir ofan brú við veiðar, en við hana er skilti þar sem stendur skýrt að veiði í landi Landsvirkjunnar sé bönnuð.

Samkvæmt Landsvirkjun þá er veiði á þessum svæðum bönnuð, en þau eru svokölluð öryggissvæði og eru menn þar á bæ ekki ánægðir með að vita af fólki þarna við veiðar og líta svo á að þarna sé um veiðiþjófa að ræða.“