Fjárhagur Sveitarfélagsins Árborgar undir smásjána?
Fjárhagur 10 og 15 sveitarfélaga verður á næstunni tekinn til sérstakrar skoðunar af eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Ekki fæst enn sem komið er upp gefið hver þessi sveitarfélög eru en líklegt má telja að Árborg sé þar á meðal.
Kristján L. Möller samgönguráðherra svaraði í vikunni fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns varðandi afkomu sveitarfélaga og horfur á komandi misserum. Í svari ráðherra kom meðal annars fram að afkoma íslenskra sveitarfélaga var neikvæð í fyrra sem nemur alls um 109,5 milljörðum króna.
Rekstrarniðurstaða sjö sveitarsjóða, A-hluta, var neikvæð í fyrra um einn milljarð króna eða meira en í A-hluta er ekki tekið tillit til fjárhags fyrirtækja í eigu bæjanna. Tap af rekstri bæjarsjóðs Kópavogs nam 8,2 milljörðum króna, Reykjanesbæjar 3,05 milljörðum, Hafnarfjarðarkaupstaðar 2,13 milljörðum, Akureyrarkaupstaðar 2,15 milljörðum, Sveitarfélagsins Árborgar 1,2 milljörðum, Akraneskaupstaðar 1,19 milljörðum og Fjarðabyggðar 1,14 milljörðum króna. Þessi sjö sveitarfélög standa undir megninu af tapi allra íslenskra bæjarsjóða en niðurstaðan fyrir landið í heild, hvað varðar A-hluta, var tap upp á 19,3 milljarða króna.
Reykjanesbær hyggst leysa fjárhagsvanda sinn með sölu eigna í orkugeiranum - Árborg hefur engar slíkar eignir til að selja. Arnold Schwarzenegger, fylkisstjóri Kaliforníu, hyggst ráðast að fjárhagsvanda þar á bæ meðal annars með því að árita bifreiðar í eigu fylkisins og selja - Árborg á fáar bifreiðar, aukinheldur sem frú bæjarstjóri, Ragnheiður Hergeirsdóttir, er líklega ekki nægilega fræg. Með öðrum orðum: Takist stjórnendum Árborgar ekki að finna sóknarfæri, og fylgja þeim eftir svo auka megi tekjur sveitarfélagsins, þá blasir við niðurskurður í þjónustu og auknar álögur á bæjarbúa.
Halldór Halldórsson, stjórnarformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði í fréttum Sjónvarps í vikunni að landsmenn geti ekki búist við sambærilegri þjónustu af hálfu sveitarfélaganna og árið 2007.
Í sveitarstjórnarlögunum er ákvæði um að veita megi sveitarfélagi heimild til að leggja aukaálag ofan á útsvar og skatta. Eins er heimilt að veita sveitarfélagi styrk eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að koma fjárhag þess á réttan kjöl. Ef hins vegar er ekki útlit fyrir að fjárhagur sveitarfélagsins batni, til lengri tíma litið, er heimilt að svipta sveitarstjórn fjárforræði og skipa því fjárhaldsstjórn.


