Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Frá leik Hauka og Fjarðabyggðar í gær.
---Mynd: Eysteinn
Íþróttir  |  25. júlí 2009

Selfyssingar með sex stiga forskot

Staða Selfyssinga á toppi 1. deildar karla í knattspyrnu styrktist í gærkvöldi eftir að Haukar og Fjarðabyggð gerðu 1-1 jafntefli. Selfoss er nú með sex stiga forskot, 29 stig, eftir 13 umferðir en Fjarðabyggð er í 2. sæti með 23 stig og Haukar í þriðja sæti með 22 stig.

Næsti leikur Selfyssinga er gegn Víkingi og fer leikurinn fram syðra.