Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Fréttir  |  25. júlí 2009

Bílveltur á Suðurlandi

Tvær bílveltur urðu í nágrenni Hvolsvallar í gær og að sögn lögreglu er ökumaður annars bílsins grunaður um ölvunarakstur. Ökumenn beggja bílanna voru einir á ferð og hlutu ekki af alvarleg meiðsli.

Önnur bifreiðin fór út af Landvegi, nálægt Galtalæk, um fimmleytið og er ökumaðurinn grunaður um ölvunarakstur. Hin bifreiðin valt skammt frá Kirkjubæjarklaustri um þrjúleytið en ekki er vitað um tildrög slyssins.