Selfossdömur burstuðu Ausfirðinga
Meistaraflokkur kvenna á Selfossi vann í gær sameiginlegt lið Fjarðabyggðar og Leiknis með sex mörkum gegn engu í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Leikurinn fór fram eystra og daginn áður gerðu Selfossdömur 1-1 jafntefli við Hött á Egilsstöðum en með jafnteflinu tryggði Selfoss sér sæti í úrslitakeppni 1. deildar þrátt fyrir að þá voru þrír leikir eftir.
Tómas Þóroddsson hefur tekið saman skýrslu um 0-6 sigurleikinn:
„Selfoss byrjaði leikinn mjög vel og á 16. mín kom Bára Sif Selfossi yfir með fínu marki eftir vel útfærða aukaspyrnu frá Önnu Þorsteins. Sex mínútum seinna skoraði svo Anna Þorsteins með þrumu skot fyrir utan teig. Virkilega snyrtilegt mark hjá henni og staðan orðin 0-2. En Anna Þorsteins þurfti svo að fara af velli meidd á 38. mín, en nafna hennar Anna María kom inn á fyrir hana.
Á 40. mínútu áttu Selfyssingar vægast sagt frábær sókn. Hún endaði með því að Bára Sif átti frábæra sendingu inn á Anítu sem skaut að marki, en markmaður Fjarðabyggðar/Leiknis varði vel. Það var svo Katrín Ýr sem hirti boltann og setti hann í netið. Staðan því orðin 0-3.
Bára Sif skoraði á 43. mínútu mjög flott mark. Boltinn gekk vel á milli stelpnanna og það var svo Anna María, sem var ný kominn inná, sem setti boltann bak við vörn Fjarðabyggðar/Leiknis og inn í autt svæði. Þar sem Bára Sif stakk sér í gegn og var komin ein á móti markmanni og skoraði. Staðan því orðin 0-4 og leikurinn allt að því búinn.
Selfoss byrjaði seinni hálfleik líkt og þann fyrri og það voru ekki nema 5 mínútur liðnar af honum er Anna María tók aukaspyrnu af 40 metra færi. Boltinn sveif upp undir slána, virkilega fallegt mark hjá henni. Edda og Þorleif komu svo inn á fyrir Thelmu Sif og Sif á 63. mínútu.
Bára Sif innsiglaði svo sigur Selfyssinga á 71. mínútu og skoraði í leiðinni sitt þriðja mark. Katrín tók þá aukaspyrnu sem fór í slána. Dagný skallaði frákastið, en markmaðurinn varði. Bára var fyrst að átta sig og skallaði boltann í netið. Guðbjörg og Karen komu svo út af fyrir Lenu og Hafdísi á 73. mín. Leikurinn endaði því 0-6 fyrir Selfoss.
Í þessum leik spiluðu Selfoss-stelpurnar mjög vel á góðum velli og létu boltann ganga sín á milli. Frábærri ferð austur á firði er lokið, þar sem þjálfarinn fór yfir helstu hrekki í meistaraflokki og kenndi galdra á milli leikja. Árný, Friðgeir og Auður, sem voru farastjórar í ferðinni stóðu, sig ótrúlega vel í að hafa umgjörðina í lagi, elduðu ofaní mannskapinn og sáu um að allt væri eins og hjá úrvalsdeildarklúbbi varðandi umgjörðina.
Byrjunarlið Selfoss: Erna Kristín, Sif Sigurðar, Þóra Margrét, Dagný Hróbjarts, Karen, Thelma, Bára, Katrín Ýr, Anna Þorsteins, Guðbjörg og Aníta. Notaðir varamenn: Rakel, Lena, Þorleif, Hafdís og Anna María.“
Tómas.
