Nokkrir jarðskjálftakippir á Reykjaneshrygg
Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga er enn með rólegra móti en Lára Ómarsdóttir, miðill á Selfossi, hefur spáð þar stórum jarðskjálfta í dag. Þegar líða tók undir hádegi í dag mældust hins vegar nokkrir kippir á Reykjaneshrygg.
Sjá má á sjálfvirku jarðskjálftakorti Veðurstofu Ísland að nokkrir skjálftar mældust á Reykjaneshrygg um klukkan 11 í morgun og samkvæmt óyfirförnum niðurstöðum var stærsti skjálftinn um 3 á Richter.
Lára segist hafa látið starfsmenn Veðurstöfunnar vita af stóra Suðurlandsskjálftanum í fyrra með 10 daga fyrirvara en sá skjálfti mældist 6,3 á Richter. Hún segist sömuleiðis hafa varað við Suðurlandskjálftanum árið 2000 og í dag spáir hún mjög öflugum jarðskjálfta á Reykjanesi, með upptök á Krýsuvíkursvæðinu. Hún hefur ekki tilgreint nákvæmlega hvenær skjálftinn á að ríða yfir en segist hafa sterka tilfinningu fyrir tímasetningunni 23:15 í kvöld.
