Slökkvilið var kallað að garðyrkjustöð á Flúðum í gærkvöldi. Heimamenn náðu að slökkva eldinn að mestu áður en slökkvilið kom á staðinn en þá var mikill reykur í húsinu og hafði reykurinn jafnframt borist í áföst hús. Í húsinu, þar sem eldurinn kviknaði, var verið að rækta um 5.000 græðlinga að tómataplöntum en tjón liggur ekki fyrir. Eldsupptök eru rakin til peru sem sprakk í gróðurhúsalampa.