Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Lára Ólafsdóttir.
Fréttir  |  28. júlí 2009

Suðurnesjamenn sluppu við jarðskjálftann

Suðurnesjamenn urðu ekki varið við stóra jarðskjálftann sem Lára Ómarsdóttir, miðill á Selfossi, spáði að bresta myndi á í gær, 27. júlí. Lára sagðist finna fyrir tímasetningunni 23:15 og skjálftinn yrði mjög öflugur með upptök á Krísuvíkursvæðinu en samkvæmt gögnum Veðurstofunnar hafa engir skjálftar mælst eftir klukkan 22:15 í gærkvöldi.

Í samtali við DV í gærkvöldi sagði Lára að þó svo ekkert hafi skolfið á Reykjanesskaga í gærkvöldi þá væri von á stóra skjálftanum einhvern næstu daga.