Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Horft frá Selfossi.
Fréttir  |  28. júlí 2009

Landið fauk á haf út

Mikið moldrok var á Suðurlandi í gær og í samtali við Morgunblaðið sagðist Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri ekki hafa séð meira moldrok í mörg ár. „Nú biðjum við Guð um góða skúr,“ sagði Sveinn.

Lítið sást til fjalla sunnalands í gær og horft frá Selfossi sást einungis glitta í Búrfell; fjöllin fjær voru hulin fjkúkandi mold.

Sveinn segir erfitt að segja til um hversu mikill skaði hafi orðið á gróðri en án efa hafi með þessu verið stigið skref aftur á bak í uppgræðslu á hálendinu.