Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Framkvæmdir við Landeyjahöfn.
Fréttir  |  28. júlí 2009

Landeyjahöfn lokuð almenningi

Lögreglan í Vestmannaeyjum og lögreglan á Hvolsvelli vilja að gefnu tilefni benda þjóðhátíðargestum á að Landeyjarhöfn er vinnusvæði og því lokuð allri bátaumferð yfir Þjóðhátíðardagana næstu helgi. 

Tilefni ábendingarinnar er að spurst hefur að einhverjir hyggist bjóða upp á ferðir, gegn gjaldi, á milli Landeyjarhafnar og Vestmannaeyja en uppselt er í allar ferðir með Herjólfi um verslunarmannahelgina.

Þeim sem sigla nálægt Bakkafjöru er jafnframt bent á að siglingar í kringum sandrifin nálægt fjörunni geta verið stórvarasöm ef eitthvað er að veðri.  Það eru því vinsamleg tilmæli lögreglu að ferðafólk taki ekki áhættu með siglingum í eða við fjöruna.

Siglingastofnun bendir á á vef sínum að almenn bílaumferð frá þjóðvegi að framkvæmdasvæði í Landeyjahöfn sé óleyfileg, enda risavaxnir trukkar á ferð með afar þungan farm.

„Nú um verslunarmannahelgina mun verktakinn gefa starfsmönnum frí og vinna við höfnina liggja niðri. Til frekara öryggis verður veginum niður að fjöru lokað og því ekki unnt að komast að Landeyjahöfn þessa helgi.“