Menning | 28. júlí 2009
Føroyskur dansur og musikk á Stokkseyri
Dagana 30. júlí til 3. ágúst verður haldin færeysk hátíð á Stokkseyri hvar boðið verður upp á skemmtun með fjölbreyttri færeyskri tónlist, færeyskum dönsum, landsleik án landsliðsmanna og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Um 20 listamenn frá Færeyjum koma fram en þar í hópi verða meðal annarra Kristian Blank, Angelika Nielsen, Jógvan Hansen, sem margir þekkja úr íslenska Idolinu, og Simme en sá gerði Rasmuslagið ódauðlegt.
