Fjölmenni er nú þegar í Vestmannaeyjum og líkur á metfjölda á Þjóðhátíð. Margir voru að skemmta sér í Vestmannaeyjabæ í nótt, og fram undir morgun, og fór allt að mestu vel fram. Tveir fengu að njóta gestrisni lögreglu en það var eingöngu fyrirbyggjandi ráðstöfun svo þeir færu sér ekki að voða vegna ölvunar.