Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Ólafur Guðmundsson er einn af lykilmönnum íslenska liðsins.
---Mynd: mbl/Golli
Íþróttir  |  31. júlí 2009

Selfyssingar í Sjónvarpinu

Íslenska U-19 landsliðið í handknattleik leikur í kvöld gegn liði Króata í úrslitaleik Heimsmeistaramóts 19 ára landsliða sem fram fer í Túnis. Selfyssingurinn Ragnar Jóhannsson er í liði Íslands og annar tveggja þjálfara liðsins er Selfyssingurinn Einar Guðmundsson. Guðmundur Á. Ólafsson er einnig í íslenska liðinu en hann lék með handknattleiksliði Selfoss á síðasta leiktímabili en mun leika með Haukum í vetur.

Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu í Sjónvarpinu og hefst útsendingin klukkan 19:30.