Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Eyþór Arnalds.
Fréttir  |  31. júlí 2009

Eyþór tekjuhæsti bæjarfulltrúi Íslands

Samkvæmt úttekt Tekjublaðs Frjálsrar verslunar var Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í Árborg, tekjuhæsti bæjarfulltrúi landsins í fyrra með tæpar 2,5 milljónir króna á mánuði.

Könnun blaðsins byggist á álögðu útsvari eins og það birtist í álagningarskrám. Blaðið setur þann fyrirvara að um sé að ræða skattskyldar tekjur á árinu 2008 og þær þurfi ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn geti falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Þá kunni í launum sumra að vera innifaldir kaupaukar vegna ársins 2007.

Þá er tekið fram að í tölunum séu ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Reynt var að skrá menn í flokka samkvæmt þeim störfum sem þeir gegna nú.  Einnig er minnt á að nokkuð hafi verið rætt um villur í álagningu skattstjóra og að kærufrestur sé ekki runninn út. Álagning sé því ekki endanleg.