Fleiri myndir með þessari frétt (3)



Jóhönnu Sigurðardóttur finnst frestunin mjög bagaleg.
Fréttir  |  31. júlí 2009

Bagaleg viðbrögð við frestun AGS

Enginn vafi er á því að mjög bagalegt er fyrir íslenska þjóð að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn (AGS) hafi enn á ný frestað að fjalla um lán til handa lánlausum Íslendingum en vonir stóðu til að lánveitingin yrði tekin fyrir næstkomandi mánudag. Viðbrögð stjórnmálamanna, og forsvarsmanna atvinnulífsins, við fréttunum eru líka bagalega einhlít og engu líkara en samræmd viðbragðsáætlun hafi verið sett af stað.

Svona brugðust þau við tíðindunum:
Jóhanna Sigurðardóttir á mbl:
„Það er bagalegt og mikil vonbrigði að endurskoðun hafi ekki verið samþykkt hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.“ Sjá nánar HÉR.

Vilhjálmur Egilsson á Vísi:
„Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ákvörðun AGS mjög bagalega.“ SJá nánar HÉR. 

Steingrímur J. Sigfússon á Vísi:
„Drátturinn sem yrði ef ekki væri hægt að ljúka þessu á mánudag er bagalegur, að mati Steingríms því AGS fari í frí til loka ágúst.“ Sjá nánar HÉR.

Tryggvi Þór Herbertsson á Vísi:
„Þetta er hins vegar bagalegt upp á orðspor og annað slíkt að þetta dragist í sífellu.“ Sjá nánar HÉR.