Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Aðaltónleikar hátíðarinnar verða haldnir í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli.
Fréttir  |  20. mars 2009

Fjölþjóðleg tónlistarhátíð í Rangárþingum

Stefnt er á að halda þriggja daga fjölþjóðlega tónlistarhátíð í Rangarþingum eystra og ytra um komandi hvítasunnuhelgi þar sem fram munu koma þekktir innlendir og erlendir tónlistarmenn. Vinnuheiti hátíðarinnar er „Norden Blusefestival“ og verður blústónlist ráðandi í bland við djazz og sveitatónlist.

Það er hópur tónlistaráhugafólks úr báðum sveitarfélögunum sem hefur veg og vanda að undirbúningi hátíðarinnar en vinna hópsins er leidd af Óla Jóni Ólasyni, hótelstjóra á Hótel Hvolsvelli, og Sigurgeir Guðmundssyni. Óli Jón vill ekki að svo stöddu nafngreina þá listamenn sem koma munu fram á hátíðinni en sagði í samtali við Sunnlending.is að þar á meðal verði bæði þekktir einstaklingar og hljómsveitir. „Við erum að vinna í að fá tvær hljómsveitir frá Skandinavíu og eru þær vel þekktar þar og eins erum við í viðræðum við innlenda listamenn. Ef vel gengur þá stefnum við á að um árlegan viðburð verði að ræða,“ segir óli Jón.

Hátíðin verður haldin á nokkrum veitinga- og skemmtistöðum í báðum sveitarfélögunum en stærstu tónleikarnir verða öll kvöldin haldnir í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli.