Þríburarnir komnir með bílpróf og Þórey Jóna situr undir stýri á bílnum sem hún er búin að kaupa.
---Mynd: MHH
Fréttir | 26. mars 2009
Þríburabílpróf á Selfossi
Vikublaðið Dagskráin segir í dag frá þrennum systkinum á Selfossi sem í vikunni fengu bílpróf samtímis en slíkt ku fremur sjaldgæft á Íslandi. Öll eiga systkinin afmæli 24. mars og öll eru þau fædd 1992 og eru þau einu þríburarnir á Selfossi.
Einar Guðni,Brynja Dögg og Þórey Jóna Guðjónsbörn voru öll í ökunámi hjá Eyvindi Bjarnasyni ökukennara í Hverageerði. Mættu þau á lögreglustöðina á Selfossi á miðnætti síðastliðið mánudagskvöld, fengu afhent bráðabirgðaskírteini og fóru svo beint á rúntinn.
Þórey Jóna er búin að fjárfesta í bifreið en Brynja Dögg og Einar Guðni hyggjast kaupa bifreið á næstunni, að því er fram kemur í Dagskránni.
Foreldrar þríburanna eru Guðjón Einarsson og Emma K. Guðnadóttir.
