Ótvíræð skilaboð um Evrópusambandsaðild
Róbert Marshall, annar tveggja nýrra þingmanna Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, segir í samtali við Sunnlending.is að niðurstaða kosninganna í gær kalli á að nú sæki Íslendingar strax um inngöngu í Evrópusambandið. Vilji kjósenda hafi komið fram í kosningunum og rétt sé að taka stuttan tíma í að mynda ríkisstjórn. „Þetta eru ótvíræð skilaboð um að nú eigi þjóðin að sækja um inngöngu í Evrópusambandið. Það er ekki eftir neinu að bíða í þeim efnum,“ segir Róbert.
Samfylkingin fékk góða kosningu í Suðurkjördæmi, með flest greidd atkvæði allra flokka, og bætti við sig einum þingmanni. „Ég er mjög ánægður og þakklátur fyrir þessa niðurstöðu og mun gera mitt besta til að rísa undir því trausti sem mér er sýnt. Það er mikið undir,“ segir Róbert Marshall.
