Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Árni Johnsen.
Fréttir  |  27. apríl 2009

Árni Johnsen fellur um sæti

Árni Johnsen færist úr 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi í það 3. vegna útstrikana. Alls beitti um fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu útstrikunum og um 17% strikuðu nafn Árna Johnsen út. Unnur Brá Konráðsdóttir skiptir sæti við Árna á listanum en Unnur Brá var í 3. sæti.

Björgvin G. Sigurðsson, oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, var strikaður út af 8,3% kjósenda Samfylkingarinnar en það nægir ekki til að hann falli um sæti.