Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Atli Gíslason.
Fréttir  |  27. apríl 2009

Segir að Samfylkingin eigi að semja við aðra en VG

Atli Gíslason, oddviti Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, segir í samtali við Mbl.is að miðað við orð Jóhönnu Sigurðardóttur, um mikilvægi aðildarumsóknar að Evrópusambandinu, ætti Jóhanna frekar að kanna möguleika á samstarfi við aðra en VG.

Atli sagðist andvígur aðild Íslands að ESB og vildi ekki að Ísland sækti um, nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn. Aðspurður sagði Atli að hann myndi ekki styðja aðildarumsókn, nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu, hvorki á vettvangi flokksins né á Alþingi.