Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Árni Johnsen.
Fréttir  |  29. apríl 2009

Árni Johnsen ber samherja sína þungum sökum

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir í viðtali við héraðsfréttablaðið Fréttir í Vestmannaeyjum, sem kemur út í kvöld, að sjálfstæðismenn í Árborg hafi unnið skipulega gegn sér í aðdraganda kosninganna. Segir Árni að þeirra sé sökin á að 17% kjósenda Sjálfstæðisflokksins hafi strikað yfir nafn hans í kosningunum. 

Í viðtalinu segir Árni vonlaust þegar samherjar hans í Sjálfstæðisflokki Suðurkjördæmis séu að skipuleggja útstrikanir sér til höfuðs.  Hann vill breyta útstrikunarreglum og segir Sjálfstæðismenn í Árborg hafa unnið óheiðarlega.

Aðrar alþingiskosningarnar í röð strika flestir yfir nafn Árna í Suðurkjördæmi, nú um 17% kjósenda en árið 2007 strikuðu 22% yfir nafn hans. Árni segir þetta fyrst og fremst innanflokks­vandamál. „Það er auðvitað alveg skelfilegt þegar samherjar manns setja af stað heilt batterí til að strika mig út. Útstrikanir eru eðlilegur hluti kosninga út frá forsendum einstaklinga en ég veit að það var sett af stað batterí á Árborgarsvæðinu mér til höfuðs, bæði af ungliðum og eldri flokksmönnum. Þau hringdu út, sögðu fólki að kjósa Sjálf­stæðisflokkinn en strika mig út. Ef þau ætluðu ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, áttu þau samt að strika mig út. Þarna var verið að blekkja kjósendur til að ógilda atkvæði sitt sem er grafalvarlegur hlutur. Verst þykir mér þegar frambjóðendendur á listanum á Árborg­arsvæðinu taka þátt í þessu," sagði Árni.

Hann bætir því við að breyta þurfi reglum um útstrikanir svo ekki sé hægt að leika þennan leik. „Þetta er auðvitað ekki hægt svona. Í fyrsta lagi eru útstrikunarreglurnar þannig að 15% kjósenda geta ráðið vilja yfir 85% kjósenda. Það er ekki lýðræði og það gengur ekki upp að hægt sé að safna hópi til að breyta kjöri 85% kjósenda. Auk þess er auðvitað gjörsamlega vonlaust að samherjar í flokknum séu að skipuleggja útstrikanir að undangengnu fjölmennu prófkjöri og um leið stuðla að enn frekari breytingum á listanum. Þetta er ekki boðlegt. Ég hefði auðvitað vel getað skipulagt útstrikanir til að vega á móti þessu enda munaði ekki nema 100 atkvæðum hvort ég myndi halda öðru sætinu eða fara niður í það þriðja. Svona vinn ég bara ekki."

Nánari umfjöllun er í Fréttum sem koma út í kvöld.